Close

VÍS: Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar VÍS vegna aðalfundar 2022

Aðalfundur Vátryggingafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 17. mars 2022 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins, Ármúla 3, 108 Reykjavík, auk þess sem gefinn er kostur á rafrænni þátttöku á fundinum.

Framboðsfrestur vegna stjórnar og tilnefningarnefndar Vátryggingafélag Íslands hf. rann út þann 12. mars 2022 kl. 16:00.

Meðfylgjandi eru upplýsingar um þá aðila sem gefið hafa kost á sér til setu í stjórn og varastjórn annars vegar, og í tilnefninganefnd hins vegar.

Er það mat stjórnar að öll framboð séu gild sbr. 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Þar sem fimm einstaklingar hafa boðið sig fram til aðalstjórnar, tveir til varastjórnar og þrír einstaklingar hafa boðið sig fram til setu í tilnefningarnefnd er ljóst að sjálfkjörið er í stjórn og tilnefningarnefnd.

Önnur fundargögn tengd hluthafafundi má nálgast á vef félagsins: https://vis.is/hluthafafundir/.

                                                                                                      

                                                                                                       Reykjavík, 12. mars 2022.

                                                                                                       Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf.

Attachments

V tryggingaf lag slands hf VÍS: Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar VÍS vegna aðalfundar 2022